Hulli (2013)
Episodes
Episode 1OssossossSkömmu eftir að RÚV hafnar samstarfi við Hulla og kærastan hans segir honum upp er brotist inn til hans og aleigu hans stolið.
Episode 2To the Batmobile!Hulli endurnýjar samband sitt við gamlan vin, Svan, sem var einu sinni nörd en er nú orðinn hnakki.
Episode 3Ormar munu nærast í líki þínuHulli samþykkir að fara í líkamsrækt með því skilyrði að Svanur fari á gjörninganámskeið. Ekki er nóg með að þolraunir þessar ætli frá þeim dauðum að ganga, heldur er auk þess hugsanlegt að þriggja ára dóttir Kiddýar sé AntiKristur
Episode 4Besti felustaður í heimi?Hulli er að verða 35 ára og kominn tími til að hætta þessum aumingjaskap og fá sér bílpróf. Á meðan fara vinir Hulla svaðilför um undirheima Reykjavíkur í leit að hinni fullkomnu afmælisgjöf handa vini sínum.
Episode 5Brakandi beikonbugðurHulli er með ritstíflu og bregður á það ráð að fara í sumarbústað rithöfundasambandsins til að skrifa sjónvarpsþátt. Á meðan gerir Bergljót heiðarlega tilraun til að passa Ástu Líf, vonda og sálarlausa stelpu á leikskólaaldri.
Episode 6Hefuru aldrei notað stinningarlyf?Hulli sættir sig illa við að Anna Svava, fyrrverandi spúsa hans, sé byrjuð með Grjóna Assface, manninum sem lagði hann í einelti í æsku. Hann fer sjálfur að líta í kringum sig en fyrst þarf hann að verða sér útum stinningarlyf.
Episode 7Sjöundi þátturHulla líst ekkert á blikuna þegar Þorri bróðir hans tekur skyndilega kristna trú. Kiddý verður ólétt og Bergljót hjálpar henni að komast í fóstureyðingu hjá kynþokkafyllsta fóstureyðara landsins.
Episode 8Áttundi þátturAll 8 episodesRíkisútvarpið sýnir Hulla áhuga að nýju og ræður hann til að skrifa sakamálaþátt. Kiddý stendur í forræðisdeilu við barnsföður sinn. Bergljót og Þorri sækja um skilnað og Svanur sýnir á sér nýja hlið. Allt að gerast í þessum lokaþætti.
Cast & Crew
Similar titles



















